Lögverndun atvinnugreina nær til um 60 þúsund starfa hér á landi sem jafngildir þriðjungi allra starfa í landinu. Þetta kemur fram í nýrri skoðun Viðskiptaráðs Íslands um lögverndun starfsgreina á íslenskum vinnumarkaði.

„Flestir vita að hérlendis þarf leyfi frá stjórnvöldum til að starfa við lækningar eða lögmennsku. Færri vita að hið sama á við um kökugerð, skrúðgarðyrkju og klæðskerasníði. Lögvernduðum atvinnugreinum hefur fjölgað verulega og í dag þarf leyfi stjórnvalda til að sinna 173 tegundum starfa á Íslandi,“ segir í skoðuninni.

Ber einkenni sérhagsmunagæslu

Viðskiptaráð segir að lögverndun sé ávallt komið á í nafni neytendaverndar en í reynd beri hún mörg einkenni sérhagsmunagæslu. Í krafti lögverndunar geti þeir sem sem fyrir sitji hækkað verð til viðskiptavina sinna og hindrað aðgengi annarra að sömu störfum. Á sama tíma bendi reynslan ekki til þess að lögverndun leiði til bættrar þjónustu.

Í skoðun Viðskiptaráðs kemur fram að Íslendingar eigi Norðurlandamet í lögverndun og hún sé bæði víðtækari, meira íþyngjandi og yfirgripsmeiri en í grannríkjunum. Lögverndun hækki verð til viðskiptavina og auki tekjur þeirra sem fyrir séu í stéttinni en hafi engin áhrif á gæði þeirrar þjónustu sem er veitt.

Stjórnvöld vanmáttug

Þá segir einnig að stjórnvöld séu vanmáttug gagnvart þróuninni. Tilraun til að endurskoða lögverndun iðnaðarstarfa árið 2012 hafi runnið út í sandinn í kjölfar samráðsferlis við fagfélög, en Viðskiptablaðið fjallaði nýlega um málið .

„Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að fylgja erlendum fordæmum og einskorða lögverndun við þær greinar þar sem hún skilar sannarlega ávinningi. Afnám lögverndunar í fjölmörgum atvinnugreinum myndi auka atvinnufrelsi, styðja við markmið stjórnvalda um aukna framleiðni, ýta undir nýsköpun og draga úr kostnaði fyrir bæði neytendur og fyrirtæki,“ segir jafnframt.

Skoðun Viðskiptaráðs má lesa í heild sinni hér.