Ársfundur Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) hefst í Davos í dag. Ráðstefnan fer fram í 400 málstofum en hægt er að horfa á um helming þeirra á vefsíðu Alþjóðaefnahagsráðsins.

Í tilefni af ársfundinum hefur verið gefin út Almenna þróunarvísitalan (e. Inclusive Development Index - IDI) fyrir árið 2018 sem er ætlað að vera annar valkostur við Verga landsframleiðslu en gefa betri mynd af því hvernig fólk leggur mat á efnahagslegar framfarir ríkja. Vísitalan tekur mið af fimmtán þáttum en þeirra á meðal eru landsframleiðsla á mann, framleiðni, tekju- og eignadreifing, meðaltekjur, opinberar skuldir, hlutfalli ellilífeyrisþega af fólki á vinnualdri og fleiri þættir.

Samkvæmt vísitölunni mælist Noregur efst en Ísland er í öðru sæti. Lúxemborg er í þriðja sæti, Sviss í því fjórða og Danmörk í því fimmta. Frekari upplýsingar um niðurstöðu fyrir einstök ríki má svo finna hér .

Yfirskrift ársfundar Alþjóðaefnahagsráðsins í ár er Sköpun sameiginlegrar framtíðar í sundurleitum

heimi .

Almenna þróunarvísitala Alþjóðaefnahagsráðsins
Almenna þróunarvísitala Alþjóðaefnahagsráðsins
© Skjáskot (Skjáskot)