„Undanfarnar vikur hef ég setið tvo Schengen-ráðherrafundi og þar á meðal tekið þátt í tveimur lokuðum, óformlegum umræðum. Ég fullyrði, að Ísland, Noregur og Sviss standa ekki verr að vígi en aðildarríki ESB, ef áhugi er á því að viðra á þessum vettvangi einhver sérgreind hagsmunamál þessara ríkja eða hafa áhrif á ákvarðanir. Ég er einnig þeirrar skoðunar, að unnt sé að vinna skipulegar að því að kynna og ræða íslenska Schengen-hagsmuni við framkvæmdastjórn ESB með núverandi skipan en ef Ísland væri aðili að ESB,“ segir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra í pistli á heimasíðu sinni í dag.

Björn fer stuttlega yfir vandamál írskra banka nú um mundir vegna lækkunar á fasteignaverði í landinu í vikulegum pistli sínum. Þar vitnar hann í orð Morgan Kelly, prófessor við University College í Dyflinni, sem segir ríkisstjórnina næstum úrræðalausa til að sporna gegn því að niðursveiflan breytist í alvarlegan samdrátt.

„Hann segir Íra ekki geta gert neitt, sem þjóð mundi venjulega gera við aðstæður sem þessar, þar sem þeir séu hluti evrusvæðisins. Þeir geti ekki lækkað vexti, þeir geti ekki lækkað gengið og þeir hafi miklu minna svigrúm til fjármálalegra aðgerða en fólk ætli. Þeir sitji einfaldlega í súpunni.“

Björn segir, og vitnar í frétt Daily Telegraph að síðustu 20 árin hafi verið litið til Írlands sem fyrirmyndar vegna hagvaxtar og efnahagsframfara. Írar eigi þó mest undir viðskiptum í pundum og dollar af öllum evruríkjum og finni því þyngst fyrir áhrifum af síhækkandi gengi evrunnar. „Morgan Kelly telur, að Írar hafi tapað 20% af samkeppnishæfni sinni síðan evran kom til sögunnar,“ segir Björn.

„Af umræðum hér á landi um viðbrögð í efnahagsmálum stendur upp úr furðulega mörgum, að eina bjargráðið sé að fara sömu leið og Írar gerðu með aðild að evrusvæðinu. Írar eru eina ESB-þjóðin, sem verður að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon-sáttmála ESB. Af fréttum má ráða, að reiði almennings í garð evrunnar kunni að leiða til þess, að sáttmálanum verði hafnað af Írum. Þar með yrði allt í uppnámi innan ESB,“ segir Björn. „Sjá má, að ríkisstjórnin vill draga sem lengst að tilkynna daginn, því að vitað er, að í kosningabaráttunni muni andstæðingar Lissabon-sáttmálans hvaðanæva að úr Evrópu koma til Írlands til að leggja sitt af mörkum til að fella hann.“

Vandinn hverfi ekki við inngöngu í ESB

„Störf mín á þessum vettvangi síðan 2003, fyrir utan formennsku í Evrópunefndinni, 2004 til 2007, hafa gefið mér einstakt tækifæri til að afla mér haldgóðrar þekkingar á tengslum Íslands og Evrópusambandsins – jafnvel meiri en flestra annarra íslenskra stjórnmálamanna. Með þessa reynslu að baki blæs ég á þau sjónarmið, að með núverandi skipan sé ekki unnt að tryggja íslenska hagsmuni á fullnægjandi hátt gagnvart Evrópusambandinu. Auk þess lít ég á það sem uppgjöf við stjórn íslenskra efnahagsmála að halda, að allur vandi hverfi með því einu að ganga í Evrópusambandið til að komast í eitthvert evruskjól,“ segir Björn að lokum.