Fjölmörg ríki, þar með talin flest Evrópuríki, hafa ákveðið að vinna að undirbúningi stofnunar bankans ásamt ríkjum Asíu en fyrir liggur að höfuðstöðvar bankans verða í Peking. Ekki liggur fyrir hvert stofnframlag einstakra ríkja verður en gert er ráð fyrir að heildarstofnfé bankans nemi allt að 100 milljörðum bandaríkjadala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu .

Það er mat ríkisstjórnarinnar að aðild að AIIB muni styrkja enn frekar góð samskipti Íslands og Asíuríkja og styðja við nýja vaxtarbrodda á viðskiptasviðinu. Áhugi ríkja heims á því að lána fé til uppbyggingar innviða í Asíu tengist ekki síst sívaxandi alþjóðavæðingu efnahagskerfa veraldar.

Asía er sá hluti efnahagskerfis heimsins sem vex hvað hraðast. Nú taka við samningaviðræður milli stofnaðila um endanlega stofnsetningu bankans en markmiðið er að þeim ljúki fyrir árslok.

Íslands slæst þá í hóp með Noregi og Taiwan sem einnig sóttu um stofnaðild að AIIB í dag líkt og Viðskiptablaðið sagði frá, sjá hér .