Íslenska landsliðið í handbolta sigraði rétt í þessu Spánverja með 36 mörkum gegn 30 um sæti í úrslitaleik á Ólympíuleikunum í Peking.

Íslendingar höfðu forystu í leiknum frá upphafi og mun liðið því mæta Frökkum á sunnudagsmorgun.

Mikil stemning var á vinnustöðum víða um land og sé smellt á mynd nr. 2 hér til hliðar má sjá mynd úr mötuneyti Nýherja sem send var á Viðskiptablaðið.