Íslensk stjórnvöld mun vara ríflega 48 milljónum króna til að fjármagna um 100 þúsund skammta af bóluefni fyrir lágtekjuþjóðir. Ástæðan er vegna þess að stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19, óháð efnahag. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Noregur og Ísland leggja í sameiningu fé til verkefnisins COVAX (Friends of the COVAX Facility) sem gerir kleift að fjármagna kaup á allt að tveimur milljónum bóluefnaskammta fyrir lágtekjuþjóðir. Framlag Noregs og Íslands hljóðar upp á sjö milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 967 milljóna króna. Íslensk stjórnvöld standa straum af fjármögnun á 100.000 bóluefnaskömmtum sem áætla má að kosti ríflega 48 milljónir króna.

„Þátttaka Íslands og Noregs er liður í samstarfi Evrópuþjóða þar sem aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins leggja sitt af mörkum til að uppfylla það mikilvæga markmið að öllum þjóðum heims verði tryggður aðgangur að bóluefni, óháð efnahag,“ segir í tilkynningu Stjórnarráðsins.

Singapúr og Sviss leiða samstarfið en þátttökulönd auk þeirra eru öll ríki Evrópusambandsins, Ástralía, Bretland, Ísland, Ísrael, Japan, Sádi-Arabía, Nýja Sjáland, Noregur, Katar, Suður-Kórea og Sameinuðu arabísku furstadæmin.

Framlag Íslands vegna COVAX-samstarfsins kemur til viðbótar við þann hálfa milljarð króna sem þegar hefur verið lagður til þróunar og dreifingar bóluefna til þróunarríkja í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO), GAVI og CEPI sem greint var frá fyrr á þessu ári.