Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2011 var 15% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28 samkvæmt endanlegum niðurstöðum. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands .

Ísland var 12. í röðinni yfir verga landsframleiðslu á mann sama ár í samanburði 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu). Þegar litið er til bráðabirgðaniðurstaðna fyrir árið 2013 var landsframleiðsla á mann á Íslandi 19% yfir meðaltali ESB ríkja og Ísland í 11. sæti ríkjanna 37.

Magn vergrar landsframleiðslu á mann var hæst í Lúxemborg 165% yfir meðaltali ESB ríkja en þar á eftir kom Noregur þar sem verg landsframleiðsla á mann var 82% yfir meðaltali ESB ríkja. Lúxemborg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.