Frá og með deginum í dag geta viðskiptavinir Íslandsbanka óskað eftir greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. Þar segir að um sé að ræða úrræði sem lækkar greiðslubyrði viðskiptavina bankans sem eru með húsnæðislán í erlendri mynt.

„Í meginatriðum er um að ræða lausn sem gerir fólki kleift að minnka greiðslubyrði sína til skamms tíma af erlendum lánum, auk þess að draga úr áhrifum gengissveiflna á einstaka afborganir. Jafnframt er eytt óvissu um mánaðarlegar afborganir með jafnari upphæð um hver mánaðarmót,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að viðskiptavinir greiða sömu greiðslu í íslenskum krónum og gert var á gjalddaga 2. maí 2008 auk þess sem greiðsla breytist í takt við greiðslujöfnunarvísitölu sem er reiknuð og birt á vef Hagstofunnar. Þá færist mismunurinn aftan á lánstímann og lengir eða styttir hann eftir atvikum.

„Í stað sveiflna í greiðslubyrði um hver mánaðamót vegna óstöðugs gengi, þá færist sú sveifla yfir á lánstímann sem getur þá lengst eða styst eftir því hvernig gengi íslensku krónunnar þróast,“ segir í tilkynningunni.

„Styrking krónunnar felur í sér styttri lánstíma, veiking krónunnar felur í sér lengri lánstíma.  Hægt er að segja greiðslujöfnun upp hvenær sem er.“