Íslandsbanki hf. og Frumherji hf. hafa lokið fjárhagslegri endurskipulagningu síðarnefnda félagsins. Íslandsbanki eignast 80% hlutafjár í Frumherja og Ásgeir Baldurs stjórnarformaður og Orri Hlöðversson framkvæmdastjóri félagsins hafa lagt því til nýtt hlutafé og eignast með því 20% hlutafjár. Í yfirlýsingu frá Íslandsbanka segir að bankinn muni hefja söluferli á Frumherja á næstu 12 mánuðum.
Í Viðskiptablaðinu sem kom út í gær kom fram að Frumherji hf. skilaði rúmum milljarði króna í hagnað árið 2012 samkvæmt ársreikningi félagsins. Í tilkynningunni sem var send fjölmiðlum síðdegis í dag kemur fram að rekstur fyrirtækisins hefur gengið vel á undanförnum árum en. Allt frá því að efnahagsþrengingarnar skullu á haustið 2008 hefur skulda- og greiðslubyrði félagsins verið þung.
Nýlega endurákvarðaði Ríkisskattstjóri opinber gjöld á Frumherja fyrir árin 2008-2012 vegna öfugs samruna. Í kjölfar þess var vinnu við fjárhaglega endurskipulagning félagsins hraðað þar sem háar fjárhæðir féllu á það líkt og önnur fyrirtæki sem yfirtekin voru með sambærilegum hætti.