Íslandsbanki hefur óskað eftir 6 mánaða framlengingu á undanþágu frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf. í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins (FME).

Þar segir að með vísan til þess að endurskipulagning á Icelandair Group hafi reynst flóknari og umfangsmeiri heldur en fyrri áætlanir Íslandsbanka gerðu ráð fyrir, m.a. vegna þess hversu margir aðilar þurftu að koma að henni beint eða óbeint og þess ástands sem skapast hefur hjá flugfélögum í heiminum í tengslum við eldgos í Eyjafjallajökli, telji FME að mjög sérstakar aðstæður séu upp í endurskipulagningarferli Icelandair Group.

Því hafi verið ákveðið að framlengja frest Íslandsbanka til endursölu um sex mánuði.

Sjá nánar á vef FME.