Íslandsbanki hefur ákveðið að „leiðrétta“ höfuðstól gengistryggðra og verðtryggðra bílalána og bílasamninga eins og fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Þar kemur fram að leiðréttingin felur í sér að höfuðstóll láns er leiðréttur miðað við ákveðið gengi í lok september 2008.

Þetta hefur í för með sér að höfuðstóll erlendra bílalána og bílasamninga mun lækka um 23% að meðaltali, m.v. gengið eins og það var 20. október s.l. Höfuðstóll verðtryggðra bílalána og bílasamninga í íslenskum krónum lækkar um 5% að meðaltali.

Þá færist lánið yfir í íslenskar krónur á breytilegum óverðtryggðum vöxtum og veittur verður afsláttur af vöxtum fyrstu 12 mánuði lánsins. Vextir verða því 10,5% í stað 13,1% í dag. Ef vaxtabreytingar verða á tímabilinu munu vextir breytast í samræmi við það. Eftir 12 mánuði munu vextir miðast við vaxtatöflu Íslandsbanka Fjármögnunar.

Þá kemur fram að til þess að halda greiðslubyrði í lágmarki stendur viðskiptavinum Íslandsbanka til boða að lengja greiðslutíma bílalánsins, þó aldrei lengur en í þrjú ár og að hámarki 75% af þeim fjölda greiðslna sem eftir er á láninu. Hægt verður að sækja um leiðréttingu á höfuðstól bílalána og samninga fram til 15. desember næstkomandi.

Sjá nánar á vef Íslandsbanka.