Íslandsbanki hefur frá áramótum, án milligöngu Seðlabanka Íslands,  notað reikninga sína í öllum helstu myntum hjá JP Morgan, Danske Bank, Svenska Handelsbanken og SEB til erlendrar greiðslumiðlunar fyrir sína viðskiptavini.   Viðskiptavinir bankans hafa á þeim tíma getað nýtt greiðslumiðlun bankans til vöru- og þjónustuviðskipta við erlenda aðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka en eins og aðrir bankar notaði Íslandsbanki reikninga Seðlabankans fyrir erlendar færslur frá október til desember á síðasta ári en þar var um að ræða tímabundna ráðstöfun.   „Starfsmenn Íslandsbanka hafa á undanförnum mánuðum lagt áherslu á að byggja upp og viðhalda góðum samböndum við erlenda viðskiptabanka og með því hafa gjaldeyris-viðskipti og greiðslumiðlun komist aftur í gott horf á síðustu mánuðum;“ segir í tilkynningu Íslandsbanka.   Þá hefur Íslandsbanki einfaldað greiðslufyrirmæli, sem finna má á heimasíðu bankans, vegna greiðslna til Íslands.

„Tilgangurinn er að reyna að tryggja að greiðslurnar skili sér í öllum tilfellum inn á reikninga viðskiptavina bankans eins fljótt og kostur er,“ segir í tilkynningunni.