Stjórn Sjóvár-Almennra trygginga hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sem umsjónaraðila með almennu hlutafjárútboði og skráningu félagsins í Kauphöll á næsta ári.

Fram kemur í tilkynningu að markmiðið með útboðinu er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins. Hluthafar félagsins í dag eru SF1 slhf., fagfjárfestasjóður á vegum Stefnis, dótturfélagi Arion banka, SAT Eignarhaldsfélag, sem er félag í eigu Glitnis og Íslandsbanki.

„Með þessum samningi hefst nú lokaundirbúningur að skráningu Sjóvár í kauphöll.  Félagið hefur sýnt góða afkomu síðastliðin misseri og er í traustum rekstri. Það er okkar trú að Sjóvá sé góður kostur fyrir fjárfesta og góð viðbót við hlutabréfamarkaðinn á Íslandi,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, í tilkynningu.