Í kjölfar lækkunar stýrivaxta Seðlabankans í síðustu viku hefur Íslandsbanki ákveðið að lækka vexti frá og með deginum í dag á óverðtryggðum húsnæðislánum og óverðtryggðum kjörvöxtum skuldabréfalána.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfalána lækka um 0,25% og eru nú 8,75% og breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,5% og eru nú 8,0%.

Þá býður Íslandsbanki viðskiptavinum sínum höfuðstólslækkun á erlendum og verðtryggðum húsnæðislánum gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð lán í íslenskum krónum.  Síðan bankinn hóf að bjóða þetta úrræði í nóvember síðastliðnum hafa verið gerðar þrjár breytingar á vöxtum útlána.

Breytilegir vextir þessara lána hafa því lækkað úr 7,5% í 6,0% á tímabilinu að teknu tilliti til tveggja prósentustiga afsláttar sem veittur er fyrsta árið eftir höfuðstólslækkun.