Icelandair Group hf. hefur gengið frá samningi um lánalínu upp á 70 milljónir dala við Íslandsbanka hf. til fimm ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Fjárhæðin jafngildir tæpum 9,2 milljörðum íslenskra króna. Fram kemur í tilkynningunni að dregið verði á línuna eftir þörfum til að jafna árstíðarsveiflur í rekstri félagsins, styðja við áframhaldandi vöxt og fjármagna að hluta væntanlegar fjárfestingar í flugvélum sem tilkynnt hefur verið um.