Íslandsbanki lauk í dag útboði á tveimur víxlum fyrir samtals þrjá milljarða króna. Víxlarnir eru til 5 og 6 mánaða og getur hvor flokkurinn orðið að hámarki 1,5 milljarðar króna að nafnvirði.

Fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka að útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. Víxillinn til 5 mánaða var á 6,15% flötum vöxtum og 6 mánaða víxillinn á 6,2% flötum vöxtum. Tilboðum upp á 1,5 milljarða var tekið í hvorn víxil. Bréfin voru seld breiðum hópi fjárfesta og stefnt að töku þeirra til viðskipta í Kauphöllinni 20. september næstkomandi.

Þá segir í tilkynningunni að alls nemi útistandandi víxlar Íslandsbanka 10,45 milljörðum króna.