Íslandsbanki átti mestu viðskiptin árið 2019 með skráð verðbréf í kauphöll Nasdaq Iceland eða fyrir um 738,8 milljarða króna í kaupum og sölum samanlagt að því er Íslandsbanki tilkynnir upp úr gögnum frá Nasdaq Iceland.

Næst mest viðskipti á árinu voru hjá Kviku, 707,8 milljarðar króna í kaupum og sölum og þriðju mest hjá Arion banka þar sem viðskiptin numu 703,5 milljörðum króna. Ef litið er eingöngu til hlutabréfa var mesta veltan hjá Arion banka, en næst mest hjá Íslandsbanka, en mestu skuldabréfaviðskiptin voru hjá Kviku, en næst mest hjá Íslandsbanka.

Viðskipti Íslandsbanka með skráð hlutabréf á aðallista námu um 241 milljörðum króna samanlagt sem jafngildir 20% hlutdeild í Kauphöll. Viðskipti bankans með skráð skuldabréf námu um 496 milljörum króna eða 17,7% hlutdeild á markaðinum.

Sjá einnig: Fossar áttu helming stærstu viðskipta

Af heildarviðskiptum þvert á eignarflokka var Íslandsbanki með um 18,3% hlutdeild í kauphöll. Velta í Kauphöllinni jókst um tæplega 29% á milli ára eða nánar tiltekið um 21% í hlutabréfum og um 32% í skuldabréfum, en vaxtalækkun Seðlabankans setti mark sitt á árið sem leið.