Íslandsbanki og DataMarket hafa í samvinnu þróað og hannað upplýsingaveitu um alþjóðlegan jarðhitamarkað. Upplýsingarnar birtast á jarðhitamælaborði á vefsíðu Íslandsbanka. Þar er hægt að fylgjast með jarðhitamarkaðnum víðsvegar um heiminn en þó er lögð sérstök áhersla á Bandaríkin og Ísland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Á mælaborðinu má meðal annars finna upplýsingar um framleiðslugetu rafmagns úr jarðhita og áætlaða framleiðslugetu jarðhita eftir löndum. Þá er einnig hægt að sjá samanburð jarðhita við aðrar endurnýjanlegar orkuauðlindir. Olíuverð og hlutabréfaverð jarðhitafyrirtækja víðs vegar um heiminn eru uppfærð daglega, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Upplýsingaveituna má sjá hér.