Nýtt útibú Íslandsbanka opnar á Höfðabakka 9 á morgun en það er tilkomið vegna sameiningar útibúanna við Gullinbrú, í Hraunbæ og Mosfellsbæ.

Í útibúinu á Höfðabakka verða 23 reynslumiklir starfsmenn eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Markmið sameiningarinnar er að bjóða upp á öflugt útibú í austurhluta höfuðborgarinnar sem veitir bæði fyrirtækjum og einstaklingum fyrirmyndar fjármálaþjónustu. Sameiningin er einnig liður í að auka hagræði í rekstri útibúanets Íslandsbanka en bankinn rekur 19 útibú eftir sameininguna.

Útibússtjóri hins nýja sameinaða útibús verður Ólafur Ólafsson, áður útibússtjóri við Gullinbrú, aðstoðarútibússtjóri verður Karen Rúnarsdóttir, áður útibússtjóri í Mosfellsbæ og Ýlfa Proppe Einarsdóttir, fyrrverandi útibússtjóri í Hraunbæ, verður viðskiptastjóri einstaklinga. Viðskiptavinir munu halda reikningsnúmerum sínum við sameininguna.  Húsnæðið, sem er hluti af gamla Tækniháskólanum, hefur verið endurnýjað. Lögð er áhersla á gott aðgengi fyrir viðskiptavini en nýja útibúið liggur nálægt stórum umferðaræðum og er í 5 til 15 mínútna akstursfjarlægð frá öllum hverfum höfuðborgarinnar. Þá verða næg bílastæði hjá nýja útibúinu. Nýja útibúið má finna á samfélagsmiðlinum facebook undir nafninu Íslandsbanki Höfðabakka.