Friðrik Sigurðsson
Friðrik Sigurðsson
Nýtt útibú Íslandsbanka við Suðurlandsbraut hefur ákveðið að styrkja Landssamtökin Þroskahjálp um hálfa milljón  króna. Þroskahjálp eru regnhlífarsamtök fyrir 22 félög sem eru ýmist foreldra-, styrktar- og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlaða. Samtökin eru í hagsmunabaráttu fyrir fjölskyldur fatlaðra barna og er þeim þröngur stakkur sniðinn.

"Höfðinglegur styrkur Íslandsbanka er afar mikilvægur fyrir Landssamtökin Þroskahjálp. Styrkurinn mun nýtast samtökunum vel í baráttu þeirra fyrir samfélagi sem virðir og viðurkennir rétt allra til góðs og innihaldsríks lífs. Styrkurinn mun koma að afar góðum notum í þeim fjölmörgu verkefnum sem Þroskahjálp stendur fyrir um þessar mundir," segir Friðrik Sigurðsson, framkvæmdarstjóri Þroskahjálpar.