Íslandsferðir, dótturfélag FL Group, hafa selt Svissneska ferðaheildsalanum IS-Travel söluskrifstofur sínar á meginlandi Evrópu, en skrifstofurnar heita einu nafni Island Tours. Með sölu þessara skrifstofa eru Íslandsferðir að gera stefnumarkandi breytingu á starfsemi sinni sem felst í því að fyrirtækið mun hverfa af almennum neytendamarkaði í viðkomandi löndum en einbeita sér að framleiðslu og sölu pakkaferða til ferðaskrifstofa um allan heim undir vörumerkinu Iceland Travel, og skipulagningu funda og ráðstefna á Íslandi. Verðmæti samningsins er trúnaðarmál kaupanda og seljanda en salan hefur óveruleg áhrif á heildarafkomu FL Group á árinu.

Island Tours skrifstofurnar á meginlandi Evrópu eru staðsettar í Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu og í Sviss. Skrifstofurnar eru leiðandi í sölu á ferðum til Íslands. Hinir nýju eigendur, Jón Kjartansson og fyrirtæki hans IS-Travel, hafa áralanga reynslu í sölu á ferðum til Íslands. Áfram verður traust og mikið samstarf milli Íslandsferða og Island Tours skrifstofanna. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á starfsmannahaldi á Island Tours skrifstofunum við breytingar á eignarhaldinu. Alls starfa um 20 starfsmenn af ýmsu þjóðerni á þeim skrifstofum erlendis sem skipt hafa um eigendur.

Eftir breytinguna starfa alls 50 manns hjá Íslandsferðum og fer meginhluti starfseminnar fram á Íslandi. Framkvæmdastjóri félagsins er Stefán Eyjólfsson.