Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í blóma­skreytingum sem hún hlaut árið 2002.

Myndina tók Gunnar V. Andrésson og birtist hún í DV 2. maí 2002, en Vigdís hlaut titilinn eftir að hafa búið til fallegan brúðarvönd og borðskreytingu í brúðkaupsveislu. Hún sagði í samtali við DV að það hefði slegið í gegn að nota kóngablá og sæblá blóm í skreytingarnar.