Hagnaður Íslandspósts í fyrra nam 79 milljónum króna. Þetta er minna en áætlað hafði verið og mun minna en árið 2007 þegar hagnaður félagsins nam 230 milljónum króna.
Í frétt á vef samgönguráðuneytisins segir að í máli Björns Jósefs Arnviðarsonar stjórnarformanns og Ingimundar Sigurpálssonar forstjóra hafi komið fram að þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu að undanförnu hefði með aðhaldi, hagræðingu og eftirliti tekist að halda rekstrinum réttu megin við núllið.
Uppbyggingu haldið áfram
Þá segir að fram hafi komið að áfram hefði verið unnið að endurbótum á starfsstöðvum og byggingu nýrra og að rennt hefði verið fleiri stoðum undir reksturinn með því að taka upp nýja þætti í þjónustu.
Samgönguráðherra, sem fer með hlutabréf ríkisins í Íslandspósti, sem er að fullu í eigu ríkisins, sagði á fundinum að stjórn félagsins legði mikla áherslu á að halda sínu striki varðandi uppbygginguna og teldi að hún yki verðmæti fyrirtækisins, bætti afkomumöguleikana og yrði viðskiptavinum, starfsmönnum og eiganda til hagsbóta. Rökin væru ótvíræð, því það væri nauðsynlegt að halda uppbyggingunni áfram, enda skapaði endurnýjun og nýbygging pósthúsa atvinnu og ekki veitti af um þessar mundir.