Íslandspóstur hefur keypt hlut í fyrirtækinu Fraktmiðlun ehf, sem starfar undir heitinu Frakt.is. Fraktmiðlun er alhliða flutningsmiðlun sem sérhæfir sig í flutningum milli landa í flug og sjófrakt ásamt tengdri þjónustu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti.

„Íslandspóstur á fyrir TNT hraðflutninga og með samstarfi þessarra þriggja fyrirtækja næst fram enn meiri styrkur í þjónustu Íslandspósts og TNT hraðflutninga á flutningamarkaði milli landa.

Viðskiptavinum býðst því aukin þjónusta og fleiri valkostir í flutningamálum síns fyrirtækis. Þjónusta í flug- og sjófrakt, hraðsendingum, flutningstengdri þjónustu og ráðgjöf,“ segir í tilkynningunni.