Verslanir Hans Petersen og Íslandspóstur hafa hafið samstarf um framköllunarþjónustu í pósthúsinu að Síðumúla 8, 105 Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspóst.
Þar kemur fram að hægt verður að koma með myndir í framköllun og eins verður á staðnum framköllunarhugbúnaður þar sem viðskiptavinir geta sent myndir beint til Verslana Hans Petersen í framköllun.
Á pósthúsinu verða til sölu vörur tengdar ljósmyndum s.s. rammar, albúm, filmur, rafhlöður og fleira.
„Í fyrstu er samstarfið einungis bundið við afgreiðslu okkar í Síðumúla og í ljósi reynslunnar þar mun verða skoðað með frekara samstarf milli fyrirtækjanna,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri pósthúsasviðs hjá Íslandspósti í tilkynningunni.
„Í grunninn er þessi starfsemi fyrir Verslanir Hans Petersen sem Íslandspóstur tekur að sér móttaka, flutningur og afhending sem er okkar sérsvið. Að því leyti fellur þetta vel að okkar starfsemi í dag.“