Tímaritið Ísafold, sem væntanlegt er í verslanir um allt land um mánaðamótin næstu, verður prentað hjá Íslandsprenti í Hafnarfirði, segir í tilkynningu.

Starfsemi Íslandsprents hófst árið 2004 og býr prentsmiðjan yfir allri þeirri tækni og þekkingu sem þarf til að prenta hágæðatímarit, segir í tilkynningunni.

Prófanir og athuganir í prentsmiðju Íslandsprents hafa uppfyllt öll skilyrði stjórnenda Ísafoldar.