Hagnaður Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, nam 138 milljónum króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Er það töluvert meiri hagnaður en ári fyrr, en þá nam hann 25 milljónum króna.
Rekstrargjöld námu 556 m.kr. samanborið við 576 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og lækkuðu um 3,5%. Þá námu hreinar rekstrartekjur 728 milljónum króna samanborið við 607 milljónir króna fyrir sama tímabil ári fyrr, og hækkuðu þær því um 19,9%.
Eigið fé fyrirtækisins í lok tímabilsins nam 2.001 milljón króna, en var 2.035 milljónir króna í ársbyrjun. Heildareignir félagsins drógust saman um 31 milljón frá áramótum og námu 2.569 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins var 57% í lok júní, en samkvæmt lögum má hlutfallið ekki vera lægra en 8%.
Í lok júní 2015 voru 23 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 122.527 milljónum króna samanborið við 114.130 milljónir króna í lok árs 2014. Þar af eru tólf verðbréfasjóðir með hreina eign að fjárhæð 86.651 milljónir króna og ellefu fjárfestingarsjóðir með hreina eign að fjárhæð 35.876 milljónir króna.
Á fyrri hluta ársins störfuðu að meðaltali 13,3 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.