Íslandssjóðir hf., sem er í eigu Íslandsbanka, hafa ákveðið að slíta tveimur sjóðum sem til stóð að opna aftur.

Um er að ræða Sjóð 1 (skuldabréf) og Sjóð 11 (fyrirtækjaskuldabréf) en samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar hefur verið unnið að því undanfarna mánuði að finna leið til að opna aftur sjóðina „með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

„Til stóð að opna fyrir viðskipti ef aðstæður leyfðu,“ segir í tilkynningunni.

„Þrátt fyrir að sjóðurinn hafi tryggt góðan seljanleika til að mæta miklum innlausnum er sú hætta fyrir hendi að erfitt geti verið að selja fyrirtækja- og sveitarfélagabréf í eigu sjóðsins. Við slíkar aðstæður, þar sem mögulegar innlausnir geta orðið miklar, er hætta á að eignasamsetning sjóðsins riðlist verulega á mjög skömmum tíma. Það er því mat stjórnar Íslandssjóða hf. að hagsmunum sjóðfélaga sé best borgið með því að slíta sjóðnum og um leið sé jafnræði fjárfesta á endurheimtum best tryggt.“

Þá kemur fram að slit Sjóðs 1 og Sjóðs 11 fela í sér að allt laust fé verður greitt út til sjóðfélaga, þ.e. innlán og andvirði ríkisskuldabréfa. Fram kemur að greitt var úr sjóðunum þann 8. febrúar s.l. og er útgreiðsluhlutfall nú 69,2% af heildareignum fyrir Sjóð 1 og 73,9% fyrir Sjóð 11. Í framhaldi er stefnt að útgreiðslum tvisvar á ári af þeim eignum sem eftir standa og munu útgreiðslur ráðast af endurheimtum og sölu skuldabréfa á hverjum tíma.