Íslandsstofa var valið markaðsfyrirtæki ársins 2016 í dag. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica. Guðni Th. Jóhannesson afhenti Jóni Ásbergssyni, framkvæmdastjóra Íslandsstofu verðlaunin. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Verðlaunin eru veitt af ÍMARK, samtaka markaðsfólks á Íslandi.

„Í rökstuðningi dómnefndar kemur m.a. fram að markaðsstefna Íslandsstofu sé trúverðug og sett fram með skýrum hætti. Unnar eru markaðsáætlanir í samstarfi við hagsmunaaðila þar sem unnið er út frá vel skilgreindum markmiðum,“ segir í fréttatilkynningunni.

Íslandsstofa sinnir markaðs- og kynningarstarfi í þágu íslenskra útflutningsgreina og styður þannig við gjaldeyrisöflun þjóðarinnar.