Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna Fagkaupa,  og ÍJ ehf., sem heldur utan um rekstur heildverslunarinnar Ísleifs Jónssonar sem selur hreinlætistæki auk þess að reka lagnadeild.

Félög sem tilheyra Fagkaupa-samstæðunni, sem er í eigu  Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, eru Sindri, Johan Rönning, S. Guðjónsson, Áltak og Vatn og veitur.

Stór samkeppnisaðili að myndast

Í ákvörðun SKE segir að það sé mat Fagkaupa og ÍJ að samkeppnisleg áhrif samrunans séu óveruleg. Hvorug félög hafi markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir innflutning og dreifingu pípulagningarvara, né markaði fyrir innflutning og sölu hvítvöru. Þá hafi samruninn það ekki í för með sér að markaðsráðandi staða myndist í kjölfar samrunans.

Eftirlitið leitaði til hagsmunaaðila í byrjun mars og barst þrjár umsagnir. Einn þeirra sagði að ekki væri nóg að horfa einungis til markaðshlutdeildar því sameinað félag myndi hafa mjög sterka stöðu á tengdum mörkuðum. Annar sagði samrunann hafa í för með sér að mjög stór samkeppnisaðili myndaðist á markaðnum sem hefði töluverð áhrif á samkeppnisstöðu aðila á markaðnum.

Sá þriðji taldi að samruninn myndi ekki skaða hagsmuni almennings en geti raskað samkeppni þar sem eignarhaldið á byggingarmarkaðnum færist á færri hendur. Þá sé ákveðin hætta á niðurgreiðslu á ákveðnum sviðum þegar aðilar stækki með þessu móti, án þess að það hafi áhrif á reksturinn.