Íslendingar borða að meðaltali 2,6 bollur á hinum árlega bolludegi. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu .

Ríflega fjórðungur svarenda segist borða 2 bollur en tæplega 17% borða minna en 1 bollu. Þá eru rúmlega 5% svarenda segjist borða fleiri en 7 bollur en sá svarandi sem borðar flestar bollur sagðist borða 24 bollur.

Samkvæmt könnuninni borða karlar fleiri bollur en konur, íbúar á Austurlandi meira en íbúar annarra landsvæða og þeir sem hafa fjölskyldutekjur á bilinu 550-799 þúsund meira en svarendur í öðrum fjölskyldutekjuhópum. Þá borðar yngsti aldurshópurinn, þ.e. 25 ára og yngri, færri bollur en þeir sem eldri eru.