Samkvæmt niðurstöðum evrópskrar heilsufarsrannsóknar er áfengis sjaldnar neytt á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Hins vegar er óhófleg drykkja nokkuð tíðari á Íslandi. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Þegar litið er yfir áfengisneyslu í Evrópu er Ísland með sjöunda lægsta hlutfallið sem drekkur að minnsta kosti einu sinni í viku eða oftar, eða rétt rúmlega 20%. Hlutfallið er hæst í Bretlandi, 52,5%. Af Norðurlöndunum eru það Danir sem eru með hæsta hlutfallið, 51% sem er þriðja hæsta hlutfallið af þeim sem tóku þátt í könnuninni.

Næst kemur Svíþjóð í 8. sæti með tæplega 40% og Finnland í 9. sæti með rúmlega 39%. Noregur er með lægra hlutfall, eða rétt tæplega 33% og er í 15. sæti.

Íslendingar ekki dagdrykkjumenn

Ef horft er til þeirra sem drekka áfengi daglega er hlutfallið á Íslandi 0,6%, sem þýðir að Ísland er ásamt Litháen með næstlægsta hlutfallið. Hlutfallið mælist hæst í Portúgal, rúmlega 24%.

Hlutfall óhóflegrar drykkju var það fjórða lægsta á Íslandi, rúmlega 42%. Hlutfallið var lægst í Danmörku, 27,5%, en á milli Íslands og Danmörku eru Finnland með rúm 37% og Þýskaland með nær 40%.

„Óhófleg drykkja er skilgreind sem neysla 60 gramma af hreinum vínanda í einni setu sem jafngildir 3 stórum bjórum eða 5 vínglösum. Með tíðni er átt við hversu oft á síðustu 12 mánuðum neysla áfengis samsvarar óhóflegri drykkju,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Ísland er með annað hæsta hlutfallið sem neytir þetta mikils magns af áfengi sjaldnar en einu sinni í mánuði og fjórða hæsta hlutfallið sem drekkur slíkt magn nokkrum sinnum í mánuði (en þó ekki í hverri viku), eða tæp 24%. Aftur á móti er Ísland með áttunda lægsta hlutfallið sem drekkur slíkt magn í hverri viku, rétt rúm 2% sem er vel undir meðaltali Evrópusambandsins sem er rúm 5%.