Ferðamenn frá Íslandi eyða mest allra ferðamanna á mann á dag af þeim gestum sem heimsækja Bretland, eða 124 pundum á dag, sem samsvarar um 16 þúsund íslenskum krónum, samkvæmt upplýsingum frá bresku hagstofunni.

Bandaríkjamenn eyða 90 pundum á dag og gestir frá Jamica og Póllandi eyða einungis 19 pundum á dag. Að meðaltali eyða ferðamenn 57 pundum á dag í Bretlandi, segir hagstofan.

Flestir ferðamanna sem heimsækja Bretland koma frá Bandaríkjunum, eða 3,4 milljónir, og samtals eyða þeir 2,4 milljörðum punda, sem samsvarar um 311 milljörðum króna.