Fjárfestahópur, leiddur af Eggerti Magnússyni formanni Knattspyrnusambands Íslands, hefur gert kauptilboð í breska knattspyrnulið West Ham, samkvæmt fréttum í bresku blöðunum The Times og The Daily Telegraph.

Samkvæmt tilboðinu er heildarverðmæti West Ham um 75 milljónir punda, sem samsvarar rúmlega 9,5 milljörðum króna.

Eggert sagði samningaviðræðurnar á byrjunarstigi í samtali við The Times, en blaðið fullyrðir að hann muni sjálfur fjárfesta 40 milljónir punda í West Ham.

Heildarvirði (e. enterprise value) West Ham er talið vera um 100 milljónir punda, en skuldir félagsins nema rúmlega 20 milljónum punda.