Lárus Ásgeirsson hefur tekið við stöðu forstjóra Scanvægt International AS í Danmörku, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar en Marel keypti nýverið félagið.
Lárus hóf störf hjá Marel árið 1991. Hann var annar af tveimur framkvæmdastjórum sölu-og markaðssviðs Marel sem og staðgengill forstjóra. Lárus lauk B.Sc. prófi í vélaverkfræði frá H.Í 1981 og meistaragráðu í vélaverkfræði frá Oklahoma State University árið 1982.
Sigurpáll Jónsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Scanvægt International AS. Sigurpáll hóf störf hjá Marel árið 1985. Á tímabilinu 1985-1987 vann hann að vöruþróun. 1987 - 1994 var hann deildarstjóri vöruþróunar og 1994-1996 deildarstjóri tæknideildar. Sigurpáll varð framkvæmdastjóri Marel USA frá 1996 til 2000. Eftir heimkomuna árið 2000 tók Sigurpáll við stöðu framkvæmdastjóra þjónustusviðs og síðar veitti hann einnig flutningadeild og innkaupadeild forstöðu. Sigurpáll lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá H.Í 1978 og meistaragráðu í rafmagnsverkfræði frá ETH í Zürich, árið1979.
Halldór Magnússon hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra þjónustusviðs. Halldór hóf störf hjá Marel hf 1994 og starfaði sem söluhönnuður og svæðissölustjóri þar til hann flutti til Bretlands 1998 og kom á fót söluskrifstofu Marel á Bretlandi. Hann gegndi starfi framkvæmdastjóra Marel UK Ltd. þar til hann kom aftur til starfa hjá Marel hf í byrjun árs 2005. Hann var sölustjóri Marel fyrir Asíu þar til í ágúst 2006 er hann tók við stöðu framkvæmdastjóra þjónustusviðs Marel hf. Halldór lauk B.Sc. prófi í vélaverkfræði frá H.Í. 1990 og meistaragráðu í vélaverkfræði frá University of Washington 1994.