Danskt dótturfélag Nýsis, sem nefnist Nysir DK, hefur samþykkt að kaupa tvö dönsk fasteignafélög, segir í tilkynningu.

Kaupverðið var ekki gefið upp, en kaupin voru að hluta til fjármögnuð af Íslandsbanka.

Félögin eru Jehl ApS Tietgens Have og Jehl Aps Atriumhuset og samanlagt er heildarfermetraverð bygginga í eigu þeirra um 61 þúsund fermetrar.

Fyrrnefnda félagið á meðal annars allar byggingar á Gammel Kalkbrænderivej 51A í Kaupmannahöfn.

Jehl Aps Atriumhuset á fasteign við Banemarksvej 50 í Brønby, sem hýsir höfuðstöðvar danskra skatta- og tollayfirvalda.