Vöxtur var í flestum tegundum verslunar í júlí í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar.

Þar segir að heldur meiri raunaukning hafi verið á sölu matvöru í júlí en undanfarna mánuði. Það sama gildi um áfengiskaup, sem hafi verið um 15% meiri núna heldur en á sama tíma í fyrra. Þar verði hins vegar að hafa í huga að síðasti dagur júlímánaðar hafi verið föstudagur fyrir verslunarmannahelgi sem jafnan sé söluhár dagur. Í fyrra var föstudagur fyrir verslunarmannahelgi fyrsti dagur ágústmánaðar.

Skóverslun lífleg

Þá var verð á skóm 11,4% lægra í mánuðinum en á sama tíma í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Margir virðist hafa notað tækifærið þar sem sala á skóm jókst um 19,1% að raunvirði í mánuðinum miðað við júlí í fyrra. Aukning í skósölu að nafnvirði (í krónutölu) í skóverslun nam 5,6% á milli ára. Verð á fötum hækkaði hins vegar um 1,6% frá júlí í fyrra. Sala á fötum jókst um 7% frá sama mánuði í fyrra á nafnvirði og 5,3% að raunvirði.

Þá kemur fram að greinilegt sé á veltu í byggingavöruverslun að meira hafi verið um byggingaframkvæmdir, viðhald og viðgerðir í júlí síðastliðnum heldur en í júlí síðasta sumar. Um 12% aukning varð í sölu byggingavöru í júlí síðastliðnum heldur en fyrir ári, sem er næstum 14% aukning þegar leiðrétt hefur verið fyrir verðbreytingum.

Einnig varð vöxtur í sölu raftækja í mánuðinum, en um 20% aukning var í sölu minni raftækja og um 17% í sölu stærri raftækja að nafnvirði. Hins vegar var lítil breyting á sölunni milli mánaða eða um 2%.

Greiðslukortavelta jókst

Greiðslukortavelta heimilanna innanlands nam næstum 68 milljörðum króna í júlí og jókst um 8,3% frá júlí í fyrra.  Þá greiddu landsmenn 9 milljarða króna með kortum sínum erlendis í mánuðinum en það er 20% aukning frá júlí í fyrra.

Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi í júlí nam 24 milljörðum króna sem er 31% aukning frá júlí í fyrra. Ætla má að erlend kortavelta í íslenskum verslunum í júlí hafi verið liðlega 3 milljarðar króna.