Í lok 1. ársfjórðungs 2018 bjuggu alls 350.710 manns á Íslandi, 178.980 karlar og 171.730 konur að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Landsmönnum fjölgaði um 2.120 á ársfjórðungnum eða um 0,6%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 224.000 manns en 126.710 utan þess.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins fæddust 970 börn á landinu en 600 einstaklingar létust, sem er náttúruleg fjölgun um 370 manns. Á sama tíma fluttust svo 1.740 einstaklingar til landsins umfram þá sem fluttu frá því. Þar af fluttust 20 fleiri sem eru með íslenskt ríkisfang til landsins en frá því.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 150 manns á 1. ársfjórðungi 2018. Alls fluttust 560 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 370 til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 810 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 300 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku, eða 190, Noregi, 120 og Svíþjóð 90, samtals 400 manns af 580.

Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 770 til landsins af alls 2.530 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 320 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 39.570 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.