Reykjavík Geothermal hefur gert samkomulag við ríkisstjórn Eþíópíu um uppbyggingu og rekstur allt að 1.000 MW jarðvarmaorkuvers í tveimur áföngum. Áætlaður kostnaður verkefnisins er um 500 milljarðar króna.

Guðmundur Þóroddsson er forstjóri Reykjavík Geothermal.

Fram kemur í tilkynningu að fyrsta 500 MW virkjunin verði reist á háhitasvæði Corbetti-öskjunnar í Suður Eþíópíu. Þetta er virk eldstöð með öskjumyndun svipaða og víða hér á landi. Íslenskir og Eþíópískir jarðvísindamenn sem hafa rannsakað svæðið ítarlega telja Corbetti vera eitt besta jarðhitasvæði heims til framleiðslu raforku. Fyrstu 10 MW raforkuvinnslunnar verða framleidd árið 2015 og 100 MW ári síðar. Áætlað er að 500 MW jarðorkuver verði komið í fullan rekstur eftir fimm ár.