Íslendingar og Bretar hafa undirritað nýjan samning til að komast hjá tvísköttun á tekjur og söluhagnað.  Af hálfu Íslands undirritaði Benedikt Jónsson sendiherra samninginn en fyrir hönd Bretlands David Gauke, vararáðherra hjá breska fjármálaráðuneytinu.

Fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins að í nýjum samningi felst fyrst og fremst aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og þeim breytingum sem orðið hafa á tvísköttunarfyrirmynd OECD frá því að núgildandi samningur var undirritaður 1991.

„Nokkrar meginbreytingar er að finna í nýja samningnum. Í fyrsta lagi er tekinn upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana sem ekki er að finna i eldri samningi. Í öðru lagi eru með samningnum tekin af öll tvímæli um að lífeyrissjóðir njóti ívilnana nýja samningsins. Í þriðja lagi var sett inn ákvæði sem heimilar skattlagningu eftirlauna í greiðsluríki,“ segir á vef ráðuneytisins.

Stjórnvöld munu á næstu mánuðum vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2015.