Á fundi utanríkisráðuneytisins, Ferðamálastofu, Útflutningsráðs og hagsmunaaðila úr ferðaþjónustunni í gærmorgun var ákveðið að taka þátt í ferðasýningunni SATTE sem haldin verður á Indlandi 28.-30. janúar 2010.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu en sSýningin er talin sú stærsta sem haldin er á Indlandi fyrir fagaðila. Síðast, þ.e. á þessu ári, tóku 85 sýnendur frá 16 löndum þátt á sýningunni og skráðir indverskir kaupendur sem sóttu hana voru um 300, en að auki komu 2.000 indverskir kaupendur „inn af götunni“ eins og það er orðað á vef ráðsins.

Þá kemur fram að lögð hafa verið drög að pöntun á sýningarbás til að kynna ferðamöguleika á Íslandi og líklegt er talið að íslenskir þátttakendur verði að þessu sinni 4-5 talsins. Verkefnið verður unnið í samstarfi Ferðamálastofu og áðurgreindra aðila.

Utanríkisráðuneytið með íslenska sendiráðið á Indlandi í farabroddi mun annast tengslin en fagleg framkvæmd mun verða í höndum Útflutningsráðs Íslands.