Íslensk erfðagreining greindi í dag frá kaupum á líftæknifyrirtækinu Urði Verðandi Skuld af Iceland Genomics Corporation Inc. Í tilkynningu félagsins kemur fram að markmið kaupanna er að efla rannsóknir á erfðafræði krabbameina sem vonast er til að leiði til aukins skilnings á líffræðilegum orsökum þeirra og nýrra aðferða til að greina og meðhöndla krabbamein.

Í tilkynningunni segir að þúsundir íslenskra krabbameinssjúklinga og ættingja þeirra hafa tekið þátt í rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar og UVS á krabbameinum og með kaupunum verður til ein öflugasta eining til rannsókna á erfðafræði krabbameina í heiminum í dag. UVS verður rekið sem dótturfyrirtæki Íslenskrar erfðagreiningar og ábyrgðarlæknar rannsókna UVS og þær stofnanir sem hlut eiga að máli munu starfa áfram að framgangi þeirra.

?Það eru óvíða til jafn góðar skrár yfir krabbamein og á Íslandi, en slíkar skrár eru lykill að rannsóknum á erfðafræði krabbameina. Tveir stærstu aðilarnir sem stunda erfðarannsóknir á krabbameinum á Íslandi hafa nú tekið höndum saman og ég vona að það verði til að efla íslenskar krabbameinsrannsóknir enn frekar og auka möguleika okkar á að öðlast innsýn í líffræðilegar orsakir þessa illvíga sjúkdóms," sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í tilkynningunni.

Íslensk erfðagreining greiðir kaupverðið, um 350 milljónir íslenskra króna, með hlutabréfum í deCODE genetics Inc. sem eru um eitt prósent af heildarfjölda hluta í deCODE. Brú Venture Capital hf. hafði umsjón með sölunni fyrir hönd seljenda.

Hjá Íslenskri erfðagreiningu er nú unnið að erfðarannsóknum á níu krabbameinum. Athyglisverðar niðurstöður hafa m.a. verið kynntar úr umfangsmikilli rannsókn á ættlægni allra krabbameina sem greinst hafa á Íslandi frá árinu1955. Í ljós kom að áhætta á mörgum mismunandi gerðum krabbameina er aukin hjá bæði náskyldum og fjarskyldum ættingjum krabbameinssjúklinga.

UVS hefur unnið að Íslenska krabbameinsverkefninu frá árinu 1998 með þátttöku íslenskra lækna og heilbrigðisstofnana. Markmið þeirra rannsókna hefur verið að nota rannsóknir á sviði erfðafræði, líffræði og læknisfræði til að öðlast skilning á líffræðilegum orsökum krabbameina.

Persónuvernd og Vísindasiðanefnd hafa veitt leyfi til að samnýta gögn í krabbameinsrannsóknum UVS og ÍE. Tilgangur, markmið og skilmálar rannsóknanna verða óbreytt, svo og réttur þátttakenda og skuldbindingar rannsakenda gagnvart þeim. Þátttakendum í krabbameinsrannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar og UVS sem óska nánari upplýsinga er bent á að hafa samband við Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna (www.rannsokn.is).