Stofnfundur Íslensk-evrópska viðskiptaráðsins var haldinn í dag í Húsi verzlunarinnar, í lok málþings um viðskipti Íslands og Evrópusambandsins, sem FA og sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi stóðu að í sameiningu. Stofnfélagar í ráðinu eru rúmlega 20 fyrirtæki, í innflutningi, útflutningi, ferðaþjónustu, flutningum, ráðgjöf og fleiri greinum tengdum viðskiptum Íslands og ESB.

Í fyrstu stjórn ÍEV voru kjörin þau Páll Rúnar M. Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, formaður, Margrét Guðmundsdóttir, einn af eigendum Icepharma, Arnar Atlason, framkvæmdastjóri Tor ehf., Ólafur Ó. Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson og Kaaber og Damien Degeorges, framkvæmdastjóri Degeorges Consulting ehf.

Stofnfélagar eru Degeorges Consulting ehf.,ENOX Production Services GmbH, Festi hf., Frostfiskur ehf., G. Ingason hf., Garri ehf, Golden Seafood Company ehf., Hafgæði sf., Hafnarnes VER hf., Hagar hf., Icelandair Group hf.,  Icemar ehf., Icepharma hf., Innnes ehf., Islenska umboðssalan ehf., Ísfiskur hf., Málflutningsstofa Reykjavíkur ehf., Ó. Johnson og Kaaber ehf., Sælkeradreifing ehf., Smyril Line Ísland ehf., Toppfiskur ehf., Tor ehf. og WOW Air ehf.

Enn er tækifæri til að gerast stofnfélagi ráðsins. Áhugasöm fyrirtæki eru hvött til að hafa samband við skrifstofu FA.