Íslensk getspá og Íslenskar getraunir hafa samið við auglýsingastofuna ENNEMM um framleiðslu auglýsinga og kynningarefnis félaganna, samkvæmt fréttatilkynningu. Samkvæmt samningnum mun ENNEMM annast öll vörumerki félaganna tveggja; Lottó, Víkingalottó, 1x2, Lengjuna og Eurojackpot.

Stefán S. Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, kveðst ánægður með samninginn. „Við vildum breyta til og skoðuðum nokkrar auglýsingastofur og niðurstaðan var að fara með allt til ENNEMM. Við væntum mikils af samstarfinu og hlökkum til að taka næstu skref með þeim.“

Hallur A. Baldursson, stjórnarformaður ENNEMM, segir að Íslensk getspá og Íslenskar getraunir séu góð viðbót í flóru viðskiptavina stofunnar. „Þetta felur í sér mörg spennandi verkefni og það er gaman að taka við þessum vinsælu vörumerkjum til að þróa þau áfram í takt við nýja tíma.“