Íslenska hönnunar- og hugmyndafyrirtækið Tulipop selur vörur sínar í sjö verslunum í Svíþjóð og tveimur í New York. Stefnt er að því að kynna Tulipop fyrir verslunum og umboðsaðilum víða um heim á árinu en fyrirtækið selur ríkulega myndskreyttar minnisbækur, veggspjöld og gjafakort. Signý Kolbeinsdóttir hönnuður og Helga Árnadóttir stofnuðu Tulipop í janúar 2010 og hafa meðal annars gert sparibaukinn Mosa fyrir MP banka.