Íslendingar kaupa vörur og þjónustu í auknum mæli við erlendar netverslanir á sama tíma og velta í íslenskri netverslun hefur dregist saman.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri rannsókn Rannsóknaseturs verslunarinnar sem efnt var til í samstarfi við SVÞ.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur m.a. fram að þær íslensku netverslanir sem hafa náð bestum árangri hefur tekist að útvíkkað markaðssvæði sitt til viðskiptavina í öðrum löndum.
Í skýrslu með niðurstöðum rannsóknarinnar koma fram fjölmargar ábendingar til þeirra sem vilja efla netverslun sína eða hyggjast setja á stofn nýja netverslun.