Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ segir í samtali við vef landssambandsins það óneitanlega vekja athygli að á sama tíma og hugmyndir Evrópusambandsins um að gera aflaheimildir framseljanlegar skuli íslensk stjórnvöld leggja fram hugmyndir sem ganga í þveröfuga átta með takmörkunum á framsali aflaheimilda og síðan algjöru banni þess eftir fimmtán ár.
„Það er ánægjulegt að sjá metnaðarfullar hugmyndir í fiskveiðistjórn innan ESB. Reynslan sýnir okkur hins vegar að þótt góðar hugmyndir komi fram af og til verða fæstar þeirra að veruleika. Þess vegna er ástandið í fiskveiðimálum Evrópusambandsins eins og það er," er haft eftir Adolf á vef LÍÚ.
LÍÚ vitnar í frétt af vef breska ríkisútvarpsins, BBC, þar sem greint er frá því að Evrópusambandið muni gera það skilyrði við upptöku nýs fiskveiðistjórnunarkerfis árið 2013 að aflaheimildir verði framseljanlegar.