Íslensk stjórnvöld kölluðu fulltrúa Evrópusambandsins hér á landi á sinn fund vegna hótana sambandsins um viðskiptaaðgerðir gegn Íslandi vegna makrílveiða. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að ástæða fundarins hafi verið fréttatilkynning framkvæmdastjórnar ESB á þriðjudag vegna aðgerða gegn Færeyjum vegna síldveiða. Í tilkynningunni sé staðfest að framkvæmdastjórnin sé að undirbúa slíkar aðgerðir gegn Íslandi vegna makrílveiða.

Á fundinum gerðu fulltrúar utanríkisráðuneytisins fulltrúa ESB grein fyrir þeirri afstöðu íslenskra stjórnvalda að slíkar aðgerðir myndu einungis spilla fyrir samningsmöguleikum í deilunni. Ísland hafi ítrekað sýnt samningsvilja, nú síðast með boði um strandríkjafund í Reykjavík í byrjun september, sem allir deiluaðilar hafi þekkst.

Fulltrúum Evrópusambandsins var gert grein fyrir því að vaxandi hótanir um viðskiptaaðgerðir spilli verulega fyrir því andrúmslofti sem þær viðræður fari fram í. Jafnframt var vísað til yfirlýsingar ríkisstjórnar fyrir helgi og ítrekað að þó Ísland styddi ekki kröfur Færeyinga í síldarmálinu þá mótmæltu stjórnvöld harðlega aðgerðum ESB þar sem Ísland teldi að aðgerðir af þessu tagi væru ekki til þess fallnar að stuðla að lausn, heldur þvert á móti.

Að lokum var mikilvægi þess áréttað að vandað væri til upplýsingamiðlunar í þessari viðkvæmu deilu, það hjálpaði alls ekki að spyrða makrílmálið og síldarmálið saman eins og gert hafi verið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.