Evrópska eftirlitsstofnunin á vátrygginga- og lífeyrismarkaði (EIOPA) framkvæmdi álagspróf snemmsumars á vátryggingafélög á öllum vátryggingamörkuðum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Á hverjum markaði voru valin stærstu líftryggingafélögin og skaðatryggingafélögin þannig að þátt tóku vátryggingafélög sem samanlagt höfðu yfir 50% markaðshlutdeild á hvorum markaði fyrir sig.

Stærstu íslensku vátryggingafélögin (líf- og skaðatryggingafélög) tóku þátt í álagsprófinu og stóðust þau öll þau áföll sem prófað var fyrir af því er fram kemur í Fjármálaeftirlitsins.