Fyrsta vélasamstæða aflþynnuverksmiðju Becromal á Akureyri hefur verið gangsett á Akureyri en tvö ár eru liðin síðan raforkusamningur um verksmiðjuna var undirritaður. Til að byrja með er álið sem notað er í verksmiðjuna innflutt en verið er að skoða möguleika á að nýta ál framleitt hér á landi. Það sem stendur í vegi þess í dag er að álið er ekki nógu hreint.
Gert er ráð fyrir því að starfsmenn verði um 40 talsins á þessu ári, og í kringum 90 þegar framleiðsla kemst á fullt. Starfsmenn í framleiðslu munu samkvæmt starfslýsingu vinna við að setja álþynnur í vélar sem húða þær og breyta í aflþynnur, taka þátt í gæðaeftirliti og breyta stöðum á rúllum í framleiðslukerfi. Útflutningsverðmæti verksmiðjunnar verður vel á annan tug milljara króna á ári.
Kaupa 75 MW af Landsvirkjun
Becromal mun kaupa 75 MW afl frá Landsvirkjun og fyrirtækið á kost á að auka kaupin í 100 MW síðar. Orkuþörf verksmiðjunnar verður um 640 GWh á ári í upphafi sem er um fimm sinnum meira rafmagn en Eyjafjarðarsvæðið notar árlega og samsvarar nálægt 10% aukingu í eigin raforkuframleiðslu Landsvirkjunar frá síðasta ári.
Landsvirkjun mun ekki þurfa að virkja vegna þessarar orkusölu, en það flýtir vitanlega fyrir þörf á nýjum virkjunum.
Framleiðir allt að 2200 tonn
Samkvæmt starfsleyfi er rekstraraðila heimilt að framleiða allt að 2200 tonn eða sem nemur 10.800.000 m2 af aflþynnum fyrir rafmagnsþétta á ári hverju, með rafhúðun í 90 m3 kerjum. Framleiðslan fer fram í allt að 64 vélasamstæðum í 6000 fermetra verksmiðjuhúsnæði í Krossanesi við Eyjafjörð. Rekstraraðili hefur einnig heimild til pökkunar og reksturs verkstæðis og annarrar þjónustu við starfsemi sína. Rekstraraðili hefur heimild til að framleiða ammóníumfosfat sem hliðarafurð úr vothreinsun.
Alls er búið að koma 12 vélasamstæðum fyrir í verksmiðjunni. Þær verða alls 60 og er stefnt að fullum afköstum verksmiðjunnar í lok næsta árs.